1. Petersen svítan
Þú keppir ekkert við bíó-kónginn.
Einhver vildi meina að fólkið á Petersen höfði ekki til sín, sem ég skal skilja á milli 01:00 og 04:00 um helgar.
Á öllum öðrum tímum, á meðan sólin skín, er Svítan fyrir hvern þann sem langar að njóta sín í sólinni á bestu svölum borgarinnar.
Tveggja hæða rooftop þar sem sólin sest aldrei.
Úti-eldhús, rífandi stemning, Dóra Júlía á tökkunum og Oddur Atla að hrista kokteila á úti-barnum.
Aldrei velja mig atriði sem skarar fram úr á íslenskum útisvæða-mælikvarða.
Ölsen price:
400ml 1.500.- kr
Happy Hour 14:00-19:00 á 1.100.- kr
8
1,743
2. Jómfrúin
Einn rótgrónasti veitingastaður borgarinnar og það ekki að ástæðulausu. Góð þjónusta og gæða smurbrauð allan ársins hring.
Frá og með fyrstu helginni í júní er síðan lifandi jazz á útisvæðinu, alla laugardaga og þá hitnar verulega undir kolunum. Ef það ætti að setja út á eitthvað - þá er það meðalaldurinn á svæðinu sem dansar líklega í kringum ellilífeyrisaldurinn. Burt séð frá því, þá er bakgarðurinn á Jommunni einn sá allra besti sem borgin býður uppá.
Ölsen price:
500ml 1990.- kr
Happy Hour never
3
1,450
3. Óðinstorg (Snaps & Bodega)
Matur og drykkur frá bæði Snaps og Bodega. Kannski smá vindur, en ef ekki; þá er þetta besta svæðið í bænum. 100metra frá túrismanum, inní íbúðahverfinu er þessi best heppnaða framkvæmd fyrrverandi borgarstjórnar.
Ölsen price:
Snaps 400ml 1.690.- kr
Happy Hour (útisvæði) 16:00-19:00 á 1.200.- kr
Bodega 400ml 1.600.- kr
Happy Hour 16:00-18:00 á 1.100.- kr
1
1,373
4. Lebowski Bar
Aðrar frekar ,,leyndar “ svalir, á annars fjölförnum bar.
Ég leyfi mér að fullyrða að hér séu grillaðir bestu hamborgarar sem völ er á í póstnúmerinu. Rúmgóðar svalir í hjarta borgarinnar. Hér er skjólvænt og sólin skín langt fram á kvöld.
Ölsen price:
500ml 1.750.- kr
Happy Hour 16:00-19:00 á 1.100.- kr
1
2
1,377
5. Port 9
Það er eitthvað sérstakt við golden-hour svalirnar á
Port 9. Okkar fremsti vínbar; fjölbreytt úrval náttúruvína, Estrella og Lite á krana, alvöru bar-snacks á borð við grillaða osta og ólífur. Í augnablikinu standa yfir framkvæmdir sem eru megin ástæða þess að staðurinn situr ekki ofar á listanum en raun ber vitni.
Ölsen price:
400ml 1.500.- kr
Happy Hour 16:00-19:00 á 1.290.- kr
2
1,398
6. Loft Hostel
Þessi klassíska hostel-stemning; blandaður hópur fólks, borðspil og lífsgleði. Útsýni yfir Bankastrætið og mannlífið fyrir neðan.
Ölsen price:
400ml 1.590.- kr
Happy Hour 15:00-19:00 á 1.000.- kr
3
1,474
7. Dillon
Átti upprunalega að verma 10. sætið, þangað til ég kynnti mér staðhætti þarna aðeins betur.
Einhverjir myndu segja ,,pínu shady”.
Jafnvel smá Christianiu-fílingur.
En bakgarðurinn sem Dillon býr yfir er í hreinskilni sagt bara rock-solid útisvæði og rúmlega það.
Risastór garður á tveimur hæðum þar sem rokkhljómsveitir spreyta sig á tyllidögum í sumar.
Ölsen price:
500ml 1750.-kr
Happy Hour 12:00-19:00 á 1.100.- kr
3
1,438
8. Brass
Líklega ,,leyndasta” útisvæðið á listanum. Það ætti eiginlega ekki að vera að segja frá þessu; en litli bakgarðurinn við Brass er algjör perla. Húsin í kring sjá reyndar til þess að sólin skín ekki nema frá ca. 14:00 til 18:00 en fyrir vikið hefur heldur ekki enn mælst vindstig á pallinum. Geggjaður matur og vinalegt staff.
Ölsen price:
400ml 1690.- kr
Happy Hour 14:00-18:00 á 1290.- kr
2
1,595
9. Edition Hotel
Lúxus-svalir sem ættu fullt erindi ofar á listann ef ekki væri fyrir ákveðin atriði… Helsti gallinn er kannski sá að barinn opnar ekki fyrr en kl 18:00 og þ.a.l. er takmarkaður tími til að njóta svalanna í sólinni. Sömuleiðis er hótelið aðeins ,,úr leið” fyrir þetta hefðbundna Laugavegs-rölt og >90% gesta eru túrstar. Þrátt fyrir þessi atriði er vel hægt að mæla með svölunum í kvöldsólinni ef gæða-kokteill yfir frábæru útsýni er á óskalistanum.
Ölsen price:
400ml 1.600.- kr
Happy Hour never
2
1,610
10. Lemmý
Áður besta útisvæði bæjarins, þá undir merkjum Hressingarskálans.
Risa svæði þar sem hægt er að að opna og loka þakinu eftir hentisemi.
Verður forvitnilegt að kíkja á HM-leiki þarna í sumar.
40 bjórar á krana (án gríns 40), fyrir þá sem hafa áhuga á því.
Geggjað potential, en Lemmý er alltaf Lemmý.
Ölsen price:
500ml 1.700.- kr
Happy Hour 12:00-19:00 á 1.200.- kr
6
1,767
ísraelski hermaðurinn getur prísað sig sælan að hafa verið dreginn í burtu og ekki þurft að mæta þessum
4
57
4,509
























