Mitt mat: Það vegur þungt í fylgistapi sjálfstæðisflokksins hversu ábyrgðarlaus hann er orðinn. Hafa stjórnað þessu landi nánast óslitið áratugum saman en bera enga ábyrgð á neinu. Segja eitt og gera annað - en það er sko hinum að kenna.
Allt sem fer inn í ríkissjóð er annarra manna fé og það skiptir máli að ráðstafa því með sem skynsamlegustum hætti. Það eru tækifæri til aukinnar hagræðingar og frekari skilvirkni.
Ríkið situr á miklu magni fasteigna, við erum með innkaup þar sem eru gríðarleg tækifæri til úrbóta – við erum með sóun í kerfinu og við þessar aðstæður hljótum við öll, ekki bara ríkisstjórn, heldur fjárveitingavaldið allt, að vera tilbúið að leita allra leiða til að fara betur með annarra manna fé þannig að okkar sameiginlegu sjóðir séu sterkari.
Það skiptir okkur öll máli, alveg sama hvaða hlutverki við gegnum í samfélaginu. Þetta eru peningar sem við tökum af fólki og fyrirtækjum og setjum inn í sjóði til að standa undir mikilvægustu verkefnunum sem ríkið á að sinna.
Ég hef á mínum árum í stjórnmálum gert mikinn greinarmun á niðurskurði og uppskurði. Við höfum auðvitað farið í gegnum tíma þar sem niðurskurður blasti við og það þurfti að gera það hratt og það var sárskaukafullt.
Það er mikið hægt að gera með því að stokka upp kerfi og með því að fjárfesta í almennilegum grunnkerfum inni í stjórnkerfinu.
Að við séum að fjárfesta í nýsköpun og tækni. Að við séum að gera allt hvað við getum til að létta undir með fólki sem starfar í heilbrigðis- og velferðarkerfinu og svo framvegis. Því sem ríkið ákveður að sinna á ríkið að sinna almennilega.
Svo eru aðrir hlutir sem var kannski mikilvægt að gera fyrir einhverju síðan sem við erum ekki nógu dugleg að endurskoða og ákveða að hætta.
Við erum með 164 stofnanir í þessu landi og erum tæplega 400 þúsund. Ætlum við að halda því fram að 164 stofnanir séu algjörlega nauðsynlegar í okkar samfélagi? Þannig að það er margt hægt að gera án þess að tala um sársaukafullan niðurskurð. Heldur bara eðlilega kröfu á okkur sem erum að höndla með annarra manna fé að gera það eins vel og við getum
1
739
Svakalega frumlegur þessi - hef bara aldrei hitt svona sniðugan kall áður
Loksins sem konur fá að láta ljós sitt skína í hrútaheimi verkfræðinnar. Þetta er algjörlega magnað afrek, að teikna 7 km. langa trapísu, hlýtur að hafa tekið langan tíma og ef ég þekki þær rétt hafa þær prentað hvern einasta meter á A3.
1
440
Merkilegur er þessi hópur manna sem er rasandi þegar karlmaður sem er með annan húðlit en hvítan nauðgar konu en gerir grín að þolendum hvítra frægra kalla.
1
302
Við þurfum ekki að hafa áhyggjur af því hver verður næsti forseti Íslands eða hver á að borga öll þessi laun - 90% af þjóðinni verður dauð skv þessum 🤡
"Everybody who has an mRNA injection will die within 3 to 5 years, even if they have had only one injection" Delores Cahill
It is 2024 - Time Is Up!.
519
Á mínu heimili sé ég um matseld en eiginmaðurinn um að þrífa. Hann notar alltaf allan tímann - skiptir engu máli hversu langur hann er. Ég hef því byrjað að halda veislu á Þorláksmessu og byrja því Aðfangadag í jólafínu húsi #lifehack
158
Sjálfstæðismenn:"Vinstri menn eru ekki hæfir til að sýsla með almannafé"
Líka sjálfstæðismenn:"Opnum ný sendiráð til að redda vinum vinnu"
Á svo góða vinnufélaga - þess vegna fékk ég mér kaffibolla upp í rúmi í stað þess að sitja föst í Norðlingaholti vegna vegalokana sem voru ekkert auglýstar fyrr en seint og síðir.
2
459
Í öllum þessum eldgosum hefur pirrað mig þetta kæruleysi í umgengni við náttúruöflin - og allt tal um hvað þetta sé frábært fyrir markaðssetningu. Núna eru hundruðir ferðamanna að álpast þarna um þegar enginn veit hvar sprunga opnast. Þvílík firring.
338
Ætlaði að vera rosa dugleg og taka göngu/skokk túr upp frá Hafravatni. Svo réðust á mig mávar!! má þetta bara?
263
Ég vann með karlmönnum sem voru sannfærðir um að ég væri lesbísk af því að ég kunni að grilla - þeir voru ekki að grínast!
4
1,204
Var að horfa á heimildarþættina "Shiny Happy People" á Prime og þetta er ekkert smá scary shit fyrir framtíðina fyrir utan hvað þetta er mikið ógeð.
166
Í hvert skipti sem seðlabankastjóri tilkynnir stýrivaxtahækkun kemur einhver ráðherrann í viðtal og segir: "Það kemur vel til greina að grípa til aðgerða". Og núna í þrettándu hækkuninni í röð - ekkert gerst og sama tuggan.
6
522
Og þá rifjast upp fyrir mér að formaður sjálfstæðisflokksins og fjölmargir þingmenn hans kusu gegn þessu frumvarpi á Íslandi - vildu að nefnd á vegum ríkisins tæki ákvörðun fyrir konur. Talsmenn frelsisins að eigin sögn ... ruv.is/frettir/erlent/2023-0…
7
630
Rasisti á facebook - gamall hvítur íslenskur kall - sagði mér að drulla mér úr landi og kallaði aðra konu vitlausa. Kíkti á vegginn hans - jú hans fyrrverandi af erlendum uppruna kærði hann fyrir ofbeldi ... Kom rosalega á óvart #not








