Gleðilegt nýtt ár🥳
Ég veit ekki hve mikið fólk spáir í Twitter fjarveru annarra, en til þess að forðast það að feedið mitt líti út eins og ég hafi verið handtekin borgaralega fyrir tístofvirkni og síminn gerður upptækur, vildi ég láta vita að ég er í ótímabundinni Twitterpásu❤️
Ekki nóg með það að það þurfi að drepa fullt af fallegum litlum lömbum til þess að framleiða þessa vöru þá mengar hún líka eins og moððerfokker. Hvernig gengur að réttlæta þessa neyslu?
This Post is from an account that no longer exists. Learn more
Lærði þetta árið 2018 við gerð Hvað höfum við gert? Fáir vildu vita eða litu framhjá vandanum. Hef ekki keypt lambakjöt síðan. Neytandinn hefur ekkert val. Ólafur verður í viðtali um ástand lands og lambakjötsframleiðslu í Hvað getum við gert? á næsta ári frettabladid.is/frettir/kilo…
Að þurfa að kasta í vél afþví allar fjölnota andlitsgrímurnar eru skítugar er vandamál sem ég hefði ekki getað ímyndað mér fyrir tveimur árum. Staldrið þið stundum við og hugsið hvað við höfum þurft að læra MARGT á þessu eina furðulega ári? Klapp á bakið á oss, allavegana flest.
Sá þessa röð í Søstrene Grene í Kringlez í dag og get ekki hætt að hugsa um hana. Hefði vissulega skilið ástandið ef @thvengur hefði verið à vakt en hún var í Smáralind (ég tékkaði á henni, ofc) svo þetta meikar eeeengaaaan sens? Mig er farið að gruna að fólk elski bara raðir?
Konur eru eitt allra uppáhalds viðfangsefnið mitt og ég hugsa mikið um hvernig ég vil sýna þær og hvað ég vil segja með myndunum mínum. Það hefur aldrei hvarflað að mér í eitt sekúndubrot að þetta sé sjónarhornið sem vantar í narratíf um heim kvenna. Ég er furðulostin yfir þessu.
Aðgengileg og einföld grein um „The female gaze“ í listum og hvers vegna það er ómissandi og mikilvægt, fyrir öll, en sérstaklega konur: shutterstock.com/blog/female…
Uppáhalds mitt við forritið er instant Y2K level panic og hysterískar samsæriskenningar í hvert sinn sem aðrar fjölfarnar vefsíður liggja niðri
Ööögn vandræðalegt að sýna ástmanninum memeið sem ég var að ískurhlæja svo hátt yfir að hann hélt að ég væri að kafna eða öskurgràta eða bæði ein inni í herbergi og kom hlaupandi til þess að bjarga mér (bestur) og svo fannst honum memeið ekki einusinni fyndið 😅
Foreldrarnir í „Ég sá mömmu kyssa jólsvein” eiga í svo hamingjusömu poly sambandi að meira að segja börnin sýna því skilning og hafa húmor fyrir því, mjög prógressive fyrir sinn tíma 👌
Íslendingur 1: heyrðu við erum bara alveg að ná faraldrinum niður
Íslendingur 2: ég veit, þetta er agalegt!
Íslendingur 3: Halda lille partý?
Íslendingar 4-70: Geggjuð hugmynd, sjáumst eftir korter!
Ég er búin að taka 4 barna-og fjölskyldumyndatökur í dag og á tvær eftir svo ég mun tala í barnaröddinni minni að eilífu héðan í frá músímúsí bannað að dæma mig múúú 💕













