Valur Thor retweeted
Ný grein eftir mig á Nútímanum.
Ég las á FB í dag að Nútíminn hefði endanlega sýnt að hann væri rasískur. Vitnað var í frétt um atburð erlendis þar sem ráðist var á konu. Spurning mín er: Er það vegna þess að fréttin segir frá hópi blökkumanna sem ræðst á hvíta konu sem höfundur færslunnar fær úr því skorið að fjölmiðillinn sé rasískur?
Hvað má segja? Hver ákveður það? Hvar eigum við að setja mörkin, og hver á að setja þau? Er Vísir líka rasískur fyrir að segja frá fæðingu þar sem eiginmaður meinaði karlkyns sjúkraliðum að hlúa að konu sinni?
Þessi grein á örugglega eftir að fara fyrir brjóstið á mörgum, sérstaklega þeim sem vilja ekki heyra staðreyndir sem stangast á við heimsmynd þeirra.
nutiminn.is/adsendar/hvers-v…
Valur Thor retweeted
„Viðbrögð eiginmannsins eiga samkvæmt heimildum fréttastofu rætur sínar að rekja til mismunandi menningarheima.”
Þú segir ekki!
Í fréttinni kemur skýrt fram í hvora áttina aðlögunin er, jafnvel í málum sem varða líf og heilsu.
Öfug aðlögun (inngilding) á Vesturlöndum hefur haft hræðilegar afleiðingar og ekki hvað síst fyrir fólk sem þarf hjálp.
Í Evrópu eru lönd þar sem sjúkra- og slökkvilið fer ekki inn í ákveðin hverfi nema í lögreglufylgd og jafnvel hverfi sem lögreglan hættir sér ekki inn í.
Við VERÐUM að gera öllum ljóst að hér gildi íslenskar reglur og siðir en ekki fara braut síaukinnar eftirgjafar gagnvart fólki sem ætti margt ekki að vera á landinu, hvað þá að leggja Íslendingum línurnar.
Valur Thor retweeted
*סרטון קשה לצפייה*
בן עוזרי נקרא היום לחלץ את הכלב שנאבק על חייו בתעלת הביוב בסמוך למעלה אפרים. נמצאו 2 גופות של כלבים, כלב אחד חולץ בחיים. משטרת מחוז ש״י פתחו בחקירה. שאלוהים ישלם למי שעשה את זה, איזו אכזריות מטורפת.
תודה לבן שטס למקום לחלץ את הכלב.
לכל מי שיש מידע-פנו למשטרה
Valur Thor retweeted
Ríkisstjórnarmiðillinn fær utanríkisráðherra í viðtal þar sem stjórnmálamaðurinn rær lífróður. Þægilegt spjall. Enn betri fyrirsögn.
Þessu fólki er ekki sjálfrátt.
Valur Thor retweeted
Okkur er ekki viðbjargandi. #íslenskumenntaverðlaunin
Valur Thor retweeted
Árið 1927, þegar 300 ár voru liðin frá Tyrkjaráninu, var haldin fjölmenn minningarathöfn í Vestmannaeyjum til að minnast fórnarlamba þessa hörmulega atburðar.
Á næsta ári verða 400 ár liðin frá Tyrkjaráninu.
Árið 2024 lögðu Birgir Þórarinsson og fjórir aðrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins fram þingsályktunartillögu um að minnast þessara tímamóta með formlegum hætti. Tillagan hlaut ekki afgreiðslu Alþingis og virðist henni ekki hafa verið fylgt frekar eftir.
Það væri vel við hæfi að Íslendingar minntust þessara tímamóta með sambærilegum hætti og gert var fyrir tæpri öld.
Ef Alþingi ætlar ekki að beita sér fyrir því að minnast þessara tímamóta með formlegum hætti, væri tilvalið að ungir Miðflokksmenn tækju frumkvæðið og boðuðu til samkomu, til dæmis með kertafleytingu til minningar um fórnarlömbin.
Í síðustu viku ræddi Oddur Ævar Gunnarsson, „fréttmaður“ á Vísi, við Karim Askari, formann Stofnunar múslima á Íslandi, um komu sjaríadómarans Muhammad Taqi Usmani í moskuna við Skógarhlíð.
Ég hafði aldrei séð þennan Askari áður, en við lestur viðtalsins vaknaði forvitni mín. Það var eitthvað svo sláandi hvað maðurinn var kaldur í svörum. Það vottaði til dæmis ekki fyrir skilningi á því að Íslendingum gæti staðið ógn af boðskap manns sem hefur talað fyrir grýtingum og öðrum grimmilegum refsingum.
Sjaríadómarann sagði hann hafa verið ferðamann sem leit við í moskunni, og að míkrafónninn hefði óðar verið tekinn af honum ef í máli hans hefði farið að gæta einhverra öfga, enda fylgdu þau í moskunni íslenskum lögum. Það sem Usmani boðaði væri hins vegar „leyft í hans landi“.
Fréttamaðurinn Oddur Ævar var náttúrlega ekkert nema sleikjuskapurinn líkt og fréttamanna er háttur gagnvart múslimum. Hann hefði vel getað spurt formanninn: Hvað finnst þér sjálfum um það sem sjaríadómarinn hefur boðað? Finnst þér það eðlilegt? Er eitthvað í boðskap hans sem þú fordæmir afdráttarlaust? En því miður voru engar áleitnar spurningar bornar fram og viðtalið var þannig séð einskis virði.
Já, allt var þetta kunnuglegt – og ómerkilegt. En eins og ég sagði vakti kaldraninn í Askari áhuga minn svo ég fór að grúska aðeins.
Ekkert bitastætt fannst þó um hann á netinu svo ég kíkti á Facebook.
Á síðu moskunnar var myndbandið frá heimsókn sjaríadómarans ásamt auglýsingum um fyrirlesturinn enn aðgengilegt. Og engir fyrirvarar voru þar gerðir við þær öfgaskoðanir sem hann aðhyllist.
Helgin var gengin í garð og ég hugðist verja henni í eitthvað uppbyggilegra, en mér rann blóðið til skyldunnar að skoða kauða betur. Ég fór því inn á Facebook-síðuna hans.
Og boy, oh boy.
Þarna var ýmislegt áhugavert sem ég mun fjalla um síðar.
En eitt af því sem vakti athygli mína var viðtal við hann í arabísku blaði sem hann hafði birt skjáskot af á Facebook.
Ég kann vitaskuld ekki arabísku svo ég kallaði gervigreindina til og bað um þýðingu.
Mest var þetta hefðbundið spjall um líf múslima á Íslandi, og ég var við það að missa áhugann þegar ég rak augun í nokkuð sem mér þótti ansi kynlegt.
Hann fór að ræða fyrstu kynni Íslendinga af íslam og sagði, samkvæmt þýðingu sem ég lét fleiri en eina gervigreind yfirfara:
„Íslenska samfélagið kynntist íslam og múslimum árið 1627, þegar hinn frægi múslimski sjóræningi kom til suðurhluta Íslands. Hann drap hér nokkra landsmenn og rændi 214 manns, sem hann flutti til Norður-Afríku, samkvæmt íslenskum frásögnum.“
Já, þið lásuð rétt.
Tyrkjaránið. Árið 1627. Nokkrir drepnir. Og talan 214.
Ég stoppaði.
Hvað var maðurinn eiginlega að segja?
Hann er að tengja einhverja verstu böðla Íslandssögunnar, manndrápara og þrælahaldara, við trú sína.
Þessi maður, sem hefur ekki skrifað einn staf um íslenska sögu og menningu á Facebook, er með ártal Tyrkjaránsins á hreinu og meira að segja tölu yfir þá sem voru hnepptir í þrældóm. Reyndar voru um 400 manns numdir á brott í Tyrkjaráninu árið 1627 í heild. Og á fimmta tug landsmanna voru drepnir.
En það eru ekki tölurnar sem hér skipta mestu máli, heldur framsetningin.
Hann lýsir Tyrkjaráninu sem fyrstu kynnum Íslendinga af íslam. Vopnaðir ræningjar koma hingað, myrða fólk og flytja hundruð manna í þrældóm. Og hann talar um hinn „fræga“ sjóræningja.
Það dylst ekki að hér kveður við einhvern andstyggilegan velþóknunartón. Ekkert í þessari frásögn gefur til kynna að honum þyki þetta óeðlileg eða neikvæð birtingarmynd trúarinnar. Þvert á móti er nánast eins og hann sé að rifja upp merkan áfanga í sögu hennar.
Og takið eftir einu: Hann er ekki að segja að þetta hafi verið fyrstu kynni Íslendinga af tyrkneskum eða norðurafrískum ræningjum. Hann er að segja að þetta hafi verið fyrstu kynni Íslendinga af trú þeirra. Íslam.
Hann kýs sjálfur að tengja trú sína við mannránin og þrældóminn, án þess að nokkur fordæming á voðaverkunum komi fram.
Eftir voðaverkin sem Tyrkjaráninu fylgdu var hér alsiða að prestar lykju predikunum sínum á þann hátt að biðja almættið að vernda þjóðina fyrir hundtyrkjanum. Þær bænir dugðu þjóðinni vel í fjögur hundruð ár. En nú er búið að afkristna þessa þjóð og biskupinn okkar talar af hlýhug um hermenn íslams. Enda eru þeir komnir aftur og verða áreiðanlega stórtækari en síðast.
Valur Thor retweeted
Haley Stevens, þingkona Demókrataflokksins í Michigan-fylki í USA, dró stuðning sinn við Abdul El-Sayed, frambjóðanda flokksins til öldungardeildar Bandaríkjaþings, til baka á lokametrum kosningabaráttunnar þar vestra og lýsti þess í stað yfir stuðningi við mótframbjóðanda hans, Repúblikanann Mike Rogers. Ástæðan var meðal annars sú að El-Sayed hafði ekki viljað fordæma auglýsingamyndband sem gert var af samtökum sem studdu framboð hans. Í myndbandinu var látið líta svo út að stuðningur Bandaríkjanna við Ísrael ylli því að amerískar fjölskyldur gætu ekki keypt nauðþurftir í súpermörkuðum, og þetta taldi Haley ýta undir gyðingahatur. Ég tel viðbrögð hennar fullkomlega skiljanleg, ekki síst í ljósi þess hversu alvarlegt vandamál gyðingahatur er orðið í bandarísku þjóðlífi, einkum meðal stuðningsmanna og frambjóðenda Demókrataflokksins.
Auglýsingin var þó aðeins dropinn sem fyllti mælinn fyrir Haley. El-Sayed hafði áður sætt harðri gagnrýni fyrir viðbrögð sín við hryðjuverkaárás á samkunduhús gyðinga í Michigan, þar sem árásarmaðurinn, sem misst hafði ættingja í loftárás Ísraela á Líbanon, beindi hefnd sinni gegn söfnuði samkunduhússins. El-Sayed tengdi árásina við vítahring ofbeldis í Mið-Austurlöndum og sagði að „sært fólk særi aðra“ (hurt people hurt people), sem þótti gefa í skyn réttlætingu á hryðjuverkinu. Þá hafði hann haldið kosningafundi með Hasan Piker, umdeildum áhrifavaldi sem meðal annars hafði sagt að Hamas væri þúsund sinnum betra en Ísrael og gert lítið úr ásökunum um kynferðisofbeldi Hamas-liða í árásinni 7. október 2023. Haley Stevens hafði þegar gagnrýnt tengsl El-Sayed við Piker. Ákvörðun hennar átti sér þannig forsögu.
Fréttamaðurinn Elvar Þór Árnason á Vísi fjallar í gær um sigur El-Sayeds í kosningunum og í fyrirsögn fréttarinnar segir: „Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum.“
Það er verulega gagnrýnivert að blaðamaður Vísis skuli leyfa sér að fullyrða í fyrirsögn að Haley Stevens hafi gert sig seka um „svik“ með því að draga stuðning sinn við Abdul El-Sayed til baka. Með því er hann ekki aðeins að greina frá atburðum heldur fella siðferðilegan dóm um ákvörðun hennar.
Í fréttinni segir einnig að Haley hafi snúið baki við El-Sayed og að flokksmenn Demókrata hafi gagnrýnt ákvörðun hennar harðlega. Hins vegar er ekki útskýrt hvers vegna hún tók þessa ákvörðun.
Er engin ritstjórn á Vísi? Hvað varð um hlutlæga og vandaða fréttamennsku á Íslandi?
Það hefur vakið athygli mína að íslenskir fjölmiðlar, sem jafnan eru ötulir við að fjalla um fordóma og mismunun gagnvart ýmsum minnihlutahópum í Bandaríkjunum (sbr. BLM-hreyfinguna, transfólk og fleira), þegja þunnu hljóði um það vaxandi gyðingahatur sem farið er að gera vart við sig í landi hinna frjálsu og hugrökku, eins og sýnir sig berlega í umfjöllun um kosningabaráttu El-Sayeds. Sú spurning hlýtur því að vakna hvort þetta tvöfalda siðgæði kunni að endurspegla undirliggjandi fordóma gagnvart gyðingum meðal íslenskra fjölmiðlamanna.
Með þessu ætti fólk að fylgjast og láta í sér heyra hvenær sem ósómans verður vart.
Valur Thor retweeted
Elliði Vignisson - Stelpur þora ekki í strætó úr Mjóddinni
Nýtt á xn--einpling-m0a.is
Valur Thor retweeted
Frábær umfjöllun hjá @nutiminn um þetta "trúfélag" 🙌
Því meira sem sviðsljósið skín þangað - því meiri óhreinn þvottur kemur í ljós. . . 🤯
Afhverju var Gunnar Smári í félagi múslíma?😆
Reyndar, -kemur ekki á óvart þar sem hann virðist alltaf finna þörf á að vera röngum meginn í tilverunni😆
Sverri Agnars skil eg reyndar ekki heldur.
"Konurnar í búrinu" .. hljómar pínu eins og einhver sena frá BDSM félaginu?😅
-Kannski geta félag múslíma og BDSM sameinast og haldið spennandi viðburði saman? Þar sem konurnar verða í búrinu bundnar eins og Yasidi konurnar voru sem ENGINN ÚR ISLAMSKA HEIMINUM FORDÆMDI HÉR UM ÁRIÐ👀 😠
NEi ég biðst ekki afsökunar, Islam er stórhættulegt konum - og það þarf að pönkast í þeim áður en þeir verða of stórir í landinu. 🚩
En án alls gríns, þá sluppu þingmenn of vel við það að taka afstöðu.
Ása Berglind, Sigmundur Ernir, forsætisráðherra og utanríkisráðherra hafa kannski engar áhyggjur af þeim áhrifum sem svona boðskapur hefur á ungu kynslóðina?
Kannski þykir þeim þetta bara vera krúttlegur saklaus minnihlutahópur sem beri að vernda?
.... og þar með hafa þær skaðað framtíð íslenskra kvenna verulega.
Með því að taka ekki á meininu áður en það hefur dreift sér.
nutiminn.is/forsida/vildi-ko…
Valur Thor retweeted
Þessi islamski öfgamaður hefur þegar haldið hér fyrirlestur!
Hér er smá brot af hans skoðunum:
✅️ Hann studdi yfirtöku Talíbana í Afganistan.
✅️ Hann vill EKKI "afglæpavæða" samkynhneigð. . . 👀
✅️ er fyrrverandi dómari hæstarréttar Pakistan.
✅️ Hann er þeirrar skoðunar að fólk sé RÉTTDRÆPT gangi það af islam . . .
Hérna, nú bíð ég SPENNT eftir að heyra og sjá @samfylkingin með varðhundar sína ryðjast fram á ritvöllinn og í pontu þingsins og fordæma þetta.
Sigmundur Ernir, hvar eru stóru orðin sem þú sparaðir ekki þegar kaþólska kirkjan átti í hlut - sjá skjáskot:
Valur Thor retweeted
Fyrrverandi þingmaður Viðreisnar heldur því fram að þar innanborðs sé lykilfólk „ekki að performera af því það er í áfalli“ eftir misheppnaðan Evrópusambandsleiðangur. Það er Viðreisnarmanna að leysa úr þeim innanmeinum sem þar hafa grafið um sig en það varðar okkur hins vegar öll ef forystumenn í ríkisstjórn eru sagðir ófærir um að sinna störfum sínum. Eins ef flokkurinn getur ekki vegna innbyrðis átaka komið sér saman um hvert skuli stefna í grundvallarmálum. Hér bíða risavaxin verkefni. Almenningur á betra skilið.
Valur Thor retweeted
“It has always been easy to hate and destroy. To build and to cherish is much more difficult.” - Queen Elizabeth II, 1957
Valur Thor retweeted
Ísland, partýþjóðin
Morgunblaðið, 19. október 2026
„Áfengi hefur lagt íslenskt félagslíf svo rækilega undir sig að drykkjan er orðin sjálfur viðburðurinn og tilefnið aðeins átyllan.“
Íslendingar taka partý mjög alvarlega. Ekki vegna ánægjunnar, heldur vægis þeirra í lífinu.
Eftirvæntingin varir dögum saman, stundum vikum. Á sunnudeginum er partýið orðið að nýrri Íslendingasögu: Þetta var frábært! Ótrúlegt kvöld! Legendary partý. Sannarlega ógleymanlegt. Þú hefðir átt að sjá þennan og hinn!
Hvað gerðist í raun?
Kannski heilmargt. Gömul vináttubönd voru treyst og ný hnýtt. Ástarævintýri hófst. Hjónaband komst í hættu. Slúður fyrir komandi viku var tryggt. Morguninn eftir er þó mikilfengleikinn sem kvöldinu er eignaður í beinu hlutfalli við þýðingarleysi þess.
Svo eru það stórafmælin. Stórir áfangar á ævinni þar sem uppskeru lífsins er fagnað. En undir yfirborði fullorðinsveislunnar leynist enn afmælisveisla barnsins — nú með áfengið í öndvegi.
Á hverri íslenskri samkomu er kunnugleg manngerð: „hrókur alls fagnaðar“. Furðumargir telja sig slíka hróka (og byggja það mat á eigin meðmælum). Sömu sögurnar, sömu brandararnir og sama númerið, sem verður bara háværara eftir því sem líður á kvöldið. „Hrókur alls fagnaðar“ er í raun hundleiðinlegur.
Samfélag án hátíðarhalda væri óbærilegt og í landi langra, dimmra vetra þarf vart mannfræðing til að skýra löngunina til að koma saman, hlæja og gera sér glaðan dag. En eitt er að hafa rúm fyrir skemmtun í lífinu, annað að skipuleggja lífið í kringum hana. Ísland virðist nú falla í seinni flokkinn.
Áfengi og íslenska partýið eru orðin óaðskiljanleg, nánast samheiti. Tilefnið getur verið afmæli, endurfundir, fyrirtækjaviðburður, hátíð eða einfaldlega föstudagur. Tilefnið breytist. Drykkjan ekki. Áfengi hefur lagt íslenskt félagslíf svo rækilega undir sig að drykkjan er orðin sjálfur viðburðurinn og tilefnið aðeins átyllan. En hlátur, tónlist, dans, samræður, glaumur og gaman komast ágætlega af án efnafræðilegrar aðstoðar.
Nærri einn af hverjum fjórum Íslendingum er með skaðlegt drykkjumynstur. Þegar svo er ástatt er áfengi ekki einkavandi fámenns hóps vandræðamanna. Það hefur gegnsýrt íslenskt samfélag.
Hrifning Íslendinga af partýum skipti litlu máli ef hún einskorðaðist við einstaka laugardagskvöld. En samfélag opinberar gildismat sitt. Ungt fólk tileinkar sér það sem vekur áhuga hinna fullorðnu og tekur mið af hegðun þeirra. Börn alast ekki upp í skólum. Þau alast upp í menningu.
Ísland veltir nú fyrir sér slökum námsárangri barna sinna. Sökudólga er leitað meðal góðkunningja umræðunnar: kennara, námskrár, samfélagsmiðla, námsmats og prófa. En þar er gengið fram hjá grundvallarspurningunni: Hvað hefur unga fólkinu þegar verið kennt að meta?
Hverja sér litli Helgi setta á stall? Poppstjörnur, knattspyrnumenn og frægt fólk sem engu skiptir. Fleiri vísbendingar fær hann úr kynlífs- og kynjapólitík og BDSM-glenningum í skrúðgöngu niður Skólavörðustíg. Það er varla hægt að lá það barni að draga þá ályktun að þetta sé það sem hinir fullorðnu telji mikilvægt.
Hefur Helgi heyrt um Sigurð Helgason, einn fremsta stærðfræðing 20. aldar og einn mesta vitsmunamann sem Ísland hefur alið? Veit Gunna af Ara Brynjólfssyni, merkum íslenskum eðlisfræðingi sem stundaði rannsóknir á matvælaöryggi sem enn skipta máli í dag?
Það sem barn sér ekki getur það ekki stefnt að. Skóli sem sýnir börnum mestu afrek mannkyns mótar þau öðruvísi en skóli sem sýnir þeim grófar kynlífsteikningar sem kynfræðslu. Siðmenning sem gerir takmarkaðar kröfur elur fyrirsjáanlega af sér takmarkaðan metnað. Ólíkt fjölmennari samfélögum hefur Ísland ekki svo mikinn mannauð að það geti leyft sér að sóa honum. Eistland, sem er ekki stærra og nýtur ekki heldur meira dagsljóss að vetri, sýnir að smæð stendur ekki í vegi fyrir afburðaárangri í menntun.
Svo er það hinn endi ævinnar. Nýlegar afhjúpanir Kveiks um meðferð á öldruðum fara illa saman við það sem ég hef lengi talið: að Ísland sé í grunninn mannúðlegt samfélag.
Ungir og aldnir standa á sitt hvorum enda ævinnar. Annar hópurinn á enn eftir að leggja sitt af mörkum; hinn hefur þegar gert það. Hvorugur fer með völd og báðir eru háðir þeim sem standa þeirra á milli. Það sem við setjum fyrir augu hinna ungu segir þeim hvað sé þess virði að verða. Hvernig við komum fram við hina öldruðu segir þeim hvers virði það var að verða eitthvað.
Að lokum þagnar tónlistin og hláturinn, gengið er frá glösum og timburmennirnir líða hjá. Partýið er ekki uppskeran, hversu stórt sem afmælið er. Það er ekki Íslendingasaga, hvað sem sagt er á sunnudeginum. Siðmenning sem tekur hátíðahöld fyrir afrek hefur þegar lýst því yfir hvað hún telur verðugt að stefna að í lífinu og hvers virði hún metur það að gera nokkuð úr sér.







































