Glufa retweeted
Í umfjöllun sinni um falsfréttir var RÚV búið að segja þegnum sínum að 70 þúsund manns hafi farið til Ceuta, en 70 þúsund manns hafi snúið til baka. Sem sagt allir sneru til baka.
Skattgreiðendur greiða 20 milljónir á dag fyrir RÚV.
Ofbeldisalda í Ceuta eftir innrásina í sumar - Hnífa- og skotárásum fjölgar gríðarlega.
nutiminn.is/frettir/ofbeldis…
Glufa retweeted
Þetta er skólabókardæmi um sjálfsvörn.
1. Pabbinn varð fyrir árás að fyrra bragði.
2. Árásin var enn í gangi þegar sonurinn
greip til hnífsins til að verja pabba sinn.
Ef atburðarásin var eins og henni er lýst hér þá ætti lögreglan að sleppa þessum manni úr gæsluvarðhaldi hið snarasta.
Glufa retweeted
„with most of the attacks on children”
Mikil er skömm Egils Helgasonar.
Ceuta sex crimes have risen 650% since migrant influx on the Spanish territory - with most of the attacks on children trib.al/xaecuMP
Glufa retweeted
Áfram höldum við að fjalla um velferðarkerfið á vettvangi Morgunblaðsins.
Stjórnvöld hafa brugðist trausti skattgreiðenda í velferðarmálum því þetta er allt í rugli. En úr því að enginn annar er að skoða þetta þá gera @skattgreidendur það og við erum rétt að byrja.
Þetta á að vera kerfi án oftrygginga og vantrygginga og sá sem greiðir á ekki að vera verr settur en sá sem þiggur, eins og Pétur H. Blöndal heitinn sagði.
Mér finnst glæpsamlegt hvernig farið er með skattpeninga almennings. Það er ekkert eftirlit og allt á sjálfstýringu, öryrkjar sem eiga börn hafa það t.d. miklu betra fjárhagslega en venjulegt vinnandi fólk.
Við erum með risastórt bákn af fólki sem er ekki að vinna vinnuna sína líklega því það er ekki hæft til þess, eftirlitskerfin eru ónýt, stefnumótandi rannsóknir sem oftast er úthýst til Háskóla Íslands eru ónýtar, og þessu fólki sem er treyst fyrir að vinna vinnuna sína virðist vera í verkfalli eða einhverjum aktívisma. Og kjörin þeirra, eins og veikindaréttur og lengd vinnuviku, eru slík að það mætti kalla þetta sjálftöku.
Hinn almenni borgari sem greiðir skatta veit ekki að það er verið að hafa hann að fífli. Hann treystir því að það sé verið að hugsa vel um peningana hans þó alltaf er seilst dýpra og dýpra í vasa hans. Það þarf að benda honum á að það er verið að svíkja hann. Díllinn er líka slæmur, ef þú borgar ekki skattana ferðu í fangelsi - en það má eyða þessum skattpeningum með hvaða ævintýralega vitlausa hætti sem er og enginn þarf að bera ábyrgð.
Ofan í þetta allt saman þá er Skatturinn að taka niður fyrirtæki og rukka þau mörg ár aftur í tímann útaf álitaefnum vegna þess að skattalögin eru óskýr. Afleiðingin birtist í meiri útgjöldum ríkisins og minni tekjum ríkisins, eingöngu vegna einhverra aktívista í röðum starfsmanna Skattsins, svokallað allratap. Dæmi um þetta eru eftirá skattar á bílaleigur og fleiri dæmi sem verða vonandi opinber fljótlega. Það er ekkert meðalhóf lengur, bara ofbeldi.
Þá hefur ríkið jafnvel flutt hóp fólks frá þriðja heiminum hingað til lands, eingöngu til að koma því á velferðarkerfið og gera lífið hérna erfiðara og hættulegra.
Það er allt í rugli. Menntun barna okkar, heilbrigðiskerfið, útlendingamál, vegakerfið, sorpmál og raunar hvert sem litið er þar sem hið opinbera hefur puttana, þar fer allt í rugl.
Meðfylgjandi grein birtist í Morgunblaðinu í dag.
skattgreidendur.is/grein-i-m…
Trump gengur á bak orða sinna í helsta málefni sem stuðningshópur hans studdi: innflytjendamálum.
Í sama viðtali talar hann um hvernig hann græddi þrjá milljarða dollara. Hann segist ekki spá neitt í þessu og að hver sem er hefði getað grætt svona með því að kaupa hlutabréf.
Hann hefur ekki sagt að stríðið við Íran hafi verið klúður. Stríð sem, samkvæmt tölfræðinni, er nú talið álíka óvinsælt og Víetnamstríðið var á sínum tíma.
1
12
226
Trump tapaði því að hann var ekki nógu þjóðernissinnaður.
Í Ohio tapaði maður að nafni Vivek Ramaswamy. Í Mississippi töpuðu repúblikanar vegna þess að aðeins 70 groypers kusu demókrata í stað repúblikana.
Innflytjendastefna þeirra var ástæðan fyrir því að tapið var ekki stærra.
Ísrael dró Bandaríkin inn í stríðið við Íran. Flestir frambjóðendur sem sögðust vilja vera kjörnir til að styðja Ísraels töpuðu, eins og í Texas.
Eftir að Demókratar unnu risasigur í nótt má segja að MAGA sé búið. Íran-stríðið mun fara í sögubækurnar sem eitt versta svik við kjósendur og stærsta pólitíska klúður í sögunni.
Þetta átti ekki að geta gerst. Trump vann skýrt umboð og flokkurinn hafði Hvíta húsið, báðar deildir þingsins og öruggan meirihluta í Hæstarétti. Í stað þess að nýta þetta einstaka tækifæri til að framkvæma eigin stefnu var flokkurinn dreginn inn í stríð sem var lofað að yrði ekki. Margir fyrrverandi stuðningsmenn telja að hagsmunir Ísraels hafi verið settir í fyrsta sæti, á kostnað bandarískra skattgreiðenda.
Á meðan standa loforðin óefnd. Í stað raunverulegra fjöldabrottvísana og kláraðs landamæramúrs voru brottvísanir um 230 þúsund á ári, ICE hætti að birta tölur, stóru áhlaupin voru stoppuð og þingmönnum sagt að hætta að nota orðið. Að afnema fæðingarréttar-ríkisborgararétt var aldrei klárað. H-1B og aðrar leiðir til að flytja inn vinnuafl eru enn opnar, aðeins dýrari, og landbúnaður, hótel og stórfyrirtæki fengu að hafa áhrif á hvar áhlaup væru gerð. Epstein-skjölin eru ekki öll komin út, kosningalög voru ekki samþykkt þrátt fyrir öruggan meirihluta, og lítið sem ekkert gerðist gagnvart “Deep State” og þeim sem sakaðir eru um spillingu í kerfinu. Hillary Clinton hefur ekki verið dregin til ábyrgðar, né heldur nokkur annar.
Stóra skattafrumvarpið skar niður Medicaid til að fjármagna lægri fyrirtækjaskatt, og á sama tíma var beðið um hernaðarfjárlög upp á um 1,5 billjón dala. DOGE átti að skera hallann niður um milljarða en hann hélt áfram að vaxa.
Almenningur finnur fyrir þessu. Eldsneyti, matvæli, húsnæðisvextir, kreditkortavextir og tryggingar hafa rokið upp, millistéttin er stórskattlögð og ungt fólk getur ekki lengur keypt sér húsnæði.
Á meðan hefur Trump-fjölskyldan hagnast um milljarða dollara frá valdatöku, og nátengdir hagsmunaaðilar eins og Bari Weiss og Larry Ellison hafa fengið óskoraðan aðgang að valdakerfinu. Eftirmenn Trumps í Vance og Rubio eru svo fulltrúar stórra gjafa og Big Tech, ekki kjósenda.
Kjósendur gáfu Repúblikönum allt vald og fengu stríð, tóm loforð og reikninginn. Í nótt skiluðu þeir honum. Þetta er ekki endilega sigur fyrir Demókrata, heldur frekar dómur yfir flokki sem gleymdi hverjum hann átti að vinna fyrir. Það dugar ekki að benda á hvað hinir eru slæmir, því fólk vill efndir. Og það virkar ekki að tala eins og þjóðernissinni á meðan unnið er fyrir hagsmuni annarrar þjóðar.
Slíkt hið sama gæti gerst hér á landi. Við vonum að fólk hér taki eftir hvað fór úrskeiðis hjá repúblikönum og reyni að læra af mistökum þeirra.

🇺🇸🗳⚡️- Exit polls of Jewish voters show virtually no change in voting preference from previous years despite Trump sacrificing his Presidency on behalf of Israel.
Glufa retweeted
Frá því í vor hefur orðið grundvallarbreyting á fólksfjöldaþróun á Íslandi sem ætti að hafa grundvallaráhrif á spár og áætlanir.
Og nánast enginn virðist vera að spá í því og hvað það þýðir fyrir efnahags- og samfélagsþróun á næstunni, eða hvað þetta varir lengi.
Glufa retweeted
Jújú, pössum að Filippseyskar Au-pair stelpur komi ekki til landsins, enda fremja þær ekki nógu mikið af glæpum.
Mætti halda að dómsmálaráðherra sé saksóknari í leyfi sem ætlar ekki að gera sjálfa sig atvinnulausa þegar hún snýr aftur til fyrri starfa?
Nýtt myndband og ný grein sem við gerðum fyrir opinaugu.is
Þegar þrengir að framboði er raforka skert til fyrirtækja sem þurfa þá að grípa til olíu. Í janúar 2023 skerti Landsvirkjun raforku til fiskimjölsverksmiðja Síldarvinnslunnar í Neskaupstað og á Seyðisfirði. Verksmiðjan á Seyðisfirði var þá keyrð alfarið á olíu og sú í Neskaupstað ýmist á olíu eða rafmagni. Hafþór Eiríksson rekstrarstjóri sagði þetta gerast "enn einu sinni" og kallaði stöðuna "afskaplega hvimleiða" á tímum aukinnar umhverfisvitundar.
Þetta var langt frá því að vera einstakt tilvik. Veturinn 2021 til 2022 brenndu fiskimjölsverksmiðjur um 20 milljónum lítra af olíu vegna raforkuskerðinga. Veturinn 2023 til 2024 var víkjandi orka stöðvuð til fiskimjölsverksmiðja, fiskþurrkana og gagnavera frá 1. desember og síðar komu skerðingar til stórnotenda. Síldarvinnslan þurfti að keyra verksmiðjur á dísel með hundruðum milljóna króna í aukakostnað, meðal annars vegna kolefnisgjalda. Olíunotkun fiskimjölsverksmiðja fór í um níu milljónir lítra á einu ári og var enn um fjórar milljónir lítra árið eftir.
Þörfin fyrir meiri raforku nær langt út fyrir þessa starfsemi. Fiskþurrkanir, gagnaver, álver og kísilver þurfa öruggt framboð og þar við bætast orkuskipti í samgöngum, höfnum og sjávarútvegi ásamt möguleikum á frekari verðmætasköpun í iðnaði. Heimili og annað atvinnulíf þurfa einnig sitt eftir því sem þjóðinni fjölgar og hagkerfið stækkar. Eftirspurnin er því þegar til staðar og mun aukast enn frekar ef markmið um orkuskipti eiga að nást.
Raforkuframleiðslan hefur hins vegar lítið aukist frá 2017 og hefur verið í kringum 19 TWh á ári. Flutningskerfið er víða þröngt og á mörgum afhendingarstöðum lítið eða ekkert svigrúm til viðbótar. Vatnsbúskapur sveiflast milli ára og uppbygging nýrrar framleiðslu og flutningsgetu hefur ekki haldið í við aukna þörf.
Í greiningu Viðskiptaráðs er bent á um 150 kortlagða orkukosti sem saman gætu skilað yfir 80 TWh, meira en fjórfaldri núverandi raforkuframleiðslu landsins. Það væri hvorki raunhæft né æskilegt að nýta alla þessa kosti. Náttúruvernd þarf áfram að vega þungt og sum svæði eiga einfaldlega að njóta verndar. Þegar úr svo mörgum kostum er að velja ætti þó að vera hægt að forgangsraða þeim sem skila mikilli orku með ásættanlegum umhverfisáhrifum og vernda þau svæði sem hafa mest náttúruverndargildi.
Viðskiptaráð bendir jafnframt á hversu langan tíma það tekur að koma verkefnum í gegnum kerfið. Rammaáætlun, biðflokkar, kæruleiðir og seinagangur í stjórnsýslu geta tafið verkefni árum og jafnvel áratugum saman. Hvammsvirkjun er skýrt dæmi um það, en 32 ár liðu frá fyrsta mati þar til verkefnið komst loks til framkvæmda. Ný framleiðsla leysir heldur ekki vandann ein og sér. Flutningskerfið þarf að byggjast upp samhliða svo hægt sé að koma orkunni þangað sem hennar er þörf.
Við flytjum inn olíu á sama tíma og við eigum mikla möguleika á aukinni framleiðslu endurnýjanlegrar orku hér heima. Tvöföldun raforkuframleiðslu fyrir 2040 gæti því verið raunhæft markmið, samhliða skynsamlegri náttúruvernd og aukinni áherslu á vandaða hönnun og ásýnd mannvirkja. Það sem við byggjum ætti að falla vel að umhverfinu og vera vel hannað. Það skiptir máli fyrir ásýnd landsins og getur líka aukið stuðning almennings við uppbygginguna.
Glufa retweeted
Hús og stolt flokksins sem breytti Íslandi í gistiheimili endar sem gistiheimili.
visir.is/g/20262948479d/val-…
Hvernig verður Ísland árið 2050?
Við tókum þátt í að svara þeirri spurningu með myndbandi og grein fyrir Opin augu.
opinaugu.is/p/hverjir-bua-he…
Glufa retweeted
Það er ekki bara örorkan og endurhæfingarlífeyrinn sem er snjóbolti á fullri ferð, heldur líka ellilífeyrinn. Allt með vitund og vilja stjórnvalda.
Glufa retweeted
Hingað og ekki lengra!
Útgjaldaaukning frá árunum 2018-2025 í málaflokknum örorkulífeyrir, endurhæfingalífeyrir og sjúkra og endurhæfingagreiðslur fer úr 56 milljörðum í 113 milljarða.
Meðfylgjandi mynd sýnir skiptingu milli fæðingarlanda. Við erum að flytja hingað inn bótaþega á kostnað okkar í formi skattahækkana.
Þetta er komið gott, og nú þarf fólk að fara til síns heima aftur og þiggja sínar bætur þar!