Innherji - www.innherji.is (@innherji) header
Innherji - www.innherji.is (@innherji) profile picture

Innherji er sjálfstæður áskriftarmiðill innan Vísis sem býður upp á leiðandi umfjöllun um viðskiptalífið og efnahagsmál.

Reykjavík
Joined December 2021
Eftir nánast viðvarandi styrkingu um nokkurt skeið hefur gengi krónunnar, einkum gagnvart Bandaríkjadal, veikst eilítið að undanförnu en fátt gefur samt til kynna að hún muni gefa mikið eftir á næstunni, að sögn gjaldeyrismiðlara. visir.is/g/20262967664d/erfi…
114
Embætti sérstaks saksóknara gekk „allt of langt“ í ákærum á hendur bankastjórnendum eftir fjármálahrunið og líkur á að utanaðkomandi þrýstingur og óvægin fjölmiðlaumfjöllun hafi haft áhrif á rannsóknir og ákvarðanir um ákærur, segir í nýrri fræðigrein. visir.is/g/20262966917d/ser-…
1
216
Þátttaka helstu lífeyrissjóða var dræm í nýafstöðnu fjórtán milljarða útboði Bláa lónsins, meðal annars hjá sumum stórum sjóðum sem áttu hlutfallslega lítið í félaginu, og réð það miklu um að ekki tókst að fylla tilboðsbók ætlaða stærri fjárfestum. visir.is/g/20262964561d/marg…
2
261
Verðlagning Bláa lónsins í nýafstöðnu hlutafjárútboði var of há að mati fjárfestingarstjóra hjá Kviku eignastýringu, sem segir niðurstöðuna einhverja þá mest afgerandi vonbrigði sem hann hafi upplifað við skráningu félags á markað frá fjármálahruni. visir.is/g/20262964006d/drae…
1
223
Dræm eftirspurn meðal fagfjárfesta í nýafstöðnu fjórtán milljarða hlutafjárútboði Bláa lónsins þýddi að félagið nýtti sér heimild til að stækka talsvert heildarstærð A-bókarinnar, einkum ætluð minni fjárfestum, þannig að hægt yrði að ljúka útboðinu. visir.is/g/20262963371d/stae…
1
337
Meira segja millistjórnendur þessa heims gera sér grein fyrir því að ferðamenn hafa val. Þeir geta skoðað aðra staði, stytt dvölina eða einfaldlega sleppt því að koma. Það þarf því ekki hagfræðimenntun til að átta sig á að gjaldtaka hefur áhrif á hegðun. visir.is/g/20262962646d/verk…
4
341
Verðlagning Bláa Lónsins í fjórtán milljarða útboði er um fimmtungi undir meðaltali erlendra samanburðarfélaga miðað við áætlaðan EBITDA-hagnað á næsta ári, sem byggist á væntingum um talsverðan afkomuvöxt og samlegð vegna kaupa á Arctic Adventures. visir.is/g/20262959974d/verd…
1
267
"Ef grafið er undan trúverðugleika tilnefningarnefnda má búast við því að hluthafar, sem bera ábyrgð á kjöri stjórnar, leggi minna upp úr tillögum nefndanna og leiti þá annarra leiða við mat á frambjóðendum til stjórna og ákvörðun um ráðstöfun atkvæða." visir.is/g/20262957753d/doma…
1
159
Þegar ekki er gerð krafa um að allir stjórnarmenn mæti til leiks en forstjórinn skilgreindur sem óvelkominn gestur, hættir þetta að líta út eins og saklaus undirbúningur stjórnarfundar. Í staðinn er kominn óformlegur spjallfundur útvalinna stjórnarmanna. visir.is/g/20262955753d/ha-d…
2
374