
Tónlist, hljóðhönnun, matur, tæki, gaman. Please follow @medialux for english.
Reykjavík
Joined May 2009
- Tweets36.3K
- Following2.2K
- Followers6.3K
- Likes117K
Hér finnst mér einhvernvegin sem fréttamaður hafi gloprað frá sér gullnu tækifæri til að vísa í eitt besta tíst veraldar: nitter.gq/SheriffAlert/status/12…
Pétur Jónsson retweeted
Félag Nepala á Íslandi efna til góðgerðarhlaborðs til stuðnings Nepölum sem hafa misst heimili sín, eigur og ástvini í hamfaraflóðunum í Nepal í hádeginu næstkomandi Laugardag.
Klukkan 06:10 í morgun var annaðhvort verið að sprengja einhvern grunn í Vesturbænum, eða skipstjóri skemmtiferðaskips lá drukkinn á flautunni. Hvort sem heldur er, bið ég ykkur um a færa mér höfuð hins ábyrga á fati. Ég er of þreyttur til að ná í það sjálfur.
Sumarnámskeið Dale Carnegie eru eflaust frábær, en óbeislaðir fordómar mínir gera það að verkum að ég sé bara fyrir mér einbeitt og snyrtileg börn endurtaka ítrekað nafn allra sem þau ávarpa og halda höndunum fyrir framan sig um leið og þau tala hátt, hægt og skýrt.
'Heyriði, svo þurfum við að finna tökustað fyrir Hades. Er einhver með hugmynd af því hvað gæti verið líkast helvíti, helst þar sem eru einhverjar endurgreiðslur í boði?'
Christopher Nolan: 'Hold my Kókómjólk....'
Hálfsýnilegt herskip í þokunni á Faxaflóa var að gefa smá svona dystópíska tilfinningu, þangað til að ég frétti að skipið héti Juan Carlos, þá varð það strax miklu vinalegra og hressara.
Það er eitthvað gríðarlega fallegt við að búa í landi hvar harðasti svikahrappurinn svíkur til sín úlpur og samlokugrill.
Þegar veðrið er svona, langar mig að brýna fyrir ykkur að bera á ykkur súldarvörn og drekka alls ekki of mikið af vatni.
Byltingin mun sennilega hefjast á því að við tortímum glaðhlakkalegum spjallmennum sem gera ekkert gagn og espa bara fíntaugakerfi okkar. Grímuklætt fólk mun brjótast inn í gagnaver vopnað saltvatni og litlum skrúfjárnum í skjóli nætur.
Það verða víst örlög mín að horfa á knattspyrnuleik í kvöld. Er að fara að horfa á Svíþjóð niðurlægja Frakkland. Spái 3-1 fyrir Svíþjóð, maður verður að gefa Frökkunum eitt mark allavega, efnilegt lið skilst mér.
PSA: Ghibli aðdáendur gleðjist, því Joe Hisaishi verður í Hörpu með sinfó í apríl. Sjaldan keypt miða eins hratt.
Af hljóðunum úr stofunni að dæma leyfi ég mér að álykta að Svíum gangi ekkert sérstaklega vel í baráttunni við Hollendinga.
















